Fæðubótaefni
Fæðubótaefni eru í rauninni það sem nafnið eitt gefur til kynna , það er nauðsynleg viðbót við almenna nauðsynlega næringu almennings. Á seinni árum hefur notkun fæðubótaefni stóraukist vegna aukningar á unnum matvælum á sem oft á tíðum innihalda ekki þessi nauðsynlegu vítamín og steinefni sem fæðubótaefni eru rík af, matur er ekki bara matur vítamín og steinefni eru hluti af nauðsynlegum efnum fæðunnar.
Aukin þekking almennings á heilsusamlegu lífernu og hreyfingu undanfarin ár hefur dregið mjög úr fordómum gagnvart fæðubótaefnum, fyrst þegar fæðubótaefnin komu á markaðinn hérna heima var lítið um fjölbreytni efnanna og jafnvel sumir næringafræðingar sáu og töldu þetta hreint og klárt eitur og fordæmdu vöruna með harkalegum hætti, ég man eftir því þegar ég keypti mér fæðubótaefni í fyrsta sinn, ég hef verið í kringum 14-15 ára aldurinn en ég tróð þessu ofan í mig , í bókstaflegri merkingu þá tróð ég þessu ofan í mig, eftir á að hyggja var þetta eins og að drekka dísilolíu eða allt að því slíkur var viðbjóðurinn á bragðið. Sem betur fer hefur framleiðendum fjölgað og fjölbreytni aukist og bragðið orðið gott, þessir 3 þættir skapa samkeppni milli framleiðenda sem verður þess valdandi að vörurnar verða æ þróaðri og vandaðri og núna er svo komið að ekki fyrir löngu síðan las ég grein í dagblaðinu eftir næringafræðing þar sem hann segir að fæðubótaefni muni verða mun meiri í notkun fólks á næstu árum vegna þess hve skortur er að verða á nægilegu magni víta og steinefna í náttúrulegri fæðu vegna hversu mikið hún er unnin nú til dags. Þegar ég las þessa grein þá var þetta eitthvað sem kom mér ekki á óvart, fæðubótaefni hafa lengi verið hluti af mínum fæðuhring. Fæðubótaefni skiljast í marga vöruflokka og virkni og ætla ég ekki að fara skilgreina þá lið fyrir lið hér , geri það seinna J. Ég er ekki einn um það að finnast fæðubótaefni dýr vara , en er þó heppinn að fá þau á heildsöluverði (liggaliggalá) J. Ástæða þess að efnin eru í þessum verðflokki er sú að hérna heima eru góðar vörur m.a. frá EAS,MUCLETECH, LABRADA og TWINLAB . EAS er algjörlega með ríkjandi meirihluta á markaðnum hérna heima enda með langstærstan vöruflokk, svo er MUCLETECH sem er áberandi. Hin 2 merkin eru varla sjáanleg og lítið komið á framfæri þó vörur frá þeim séu síður en svo verri en margar aðrar frá stærri aðilunum. Þetta segir sig að hluta sjálft, hér ríkir hálfgerð einokun fárra aðila sem auðveldlega geta haldið uppi verði. Inn á markaðinn vantar 1 eða 2 aðila í viðbót með vöru sem hefur breiðan vöruflokk high quality vara og lækkað verð þá fylgja hinir í kjölfarið eins og gengur og gerist í samkeppni. T.d. í svíþjóð þar sem ég var fyrir stuttu eru bæðubótaefni verðlögð þannig að í samanburði við verðlag hérna þá langar manni helst til að kasta upp, svo ódýari eru þau. Þessi verðmunur á ekkert skylt við tolla og önnur gjöld , hér heima er álagning 500-600% ! og ég er ekki að krydda hlutina, belive it or not honey!
Svo ég hætti að kvarta þá set ég inn nokkur hugtök og skilgreiningar nokkura afurða fæðubótaframleiðenda.
Whey Protein : Ég kalla það bara kolvetnaprótín , hlutfallslegt magn magn kolvetna er á bilinu 60-70% á móti 15% próteins. Þessi vara er fyrir þá sem þurfa að þyngjast m.a. því kolvetni er orkugjafi sem hjálpar Ammínósýrunum að byggja upp prótín , s.s. amminosýran er uppbyggingaefni prótíns, prótín er uppbyggingaefni vöðva. Þessi efni skulu tekin FYRIR (ekki eftir æfingu) og helst snemma dags. !
Creatine : í rauninni eru til nokkrar “gerðir” kreatíns þó kreatín sé alltaf kreatín, það er í mismunandi formi. Til er : blandað kreatín m/kolvetnum , hreint creatine og creatine í fljótandi formi.Blandað creatine m/kolvetnum og sykrum er ætlað til vöðvauppbyggingar og þyngingar töluverð vökvamyndun getur átt sér stað eftir langa inntöku.Hrein kreatine er notað til vöðvauppbyggingar, að auka vöðvaúthald og þol, minni líkur á vökvamyndun en með blönduðu kreatiní.Til er í litlum flöskum creatine sem er vökvaformi og er tekið 15 mín fyrir æfingu , það er vinsælt hjá frjálsíþróttafólki og er hentugt fyrir kvenfólk, þetta creatine hefur tímabundna virkni gefur aukið vöðvaúthald og þol en virkar ca. Klukkutíma í senn, þetta er leyfilegt á íslandi.
Glutamin : Glútamín er algjörlega lífsnauðsynlegt efni fyrir fólk sem stundar mikla þjálfun og æfir stíft, kemur í veg fyrir að vöðvar líkamans segji stopp vegna ofþjálfunar kannski. Glutamin er tekið eftir æfingu og er eiginlega svona recovery efni sem hjálpar vöðvunum að ná sér á styttri tíma en ella, eftir öll átök eru vöðvarvefur skemmdur og þarf að byggja sig aftur upp með hvíld og þar kemur glutaminið inn til að hjálpa og flýtir fyrir.
Lögin á íslandi eru sterk að því leiti að lyfjaeftirlitið og innflytjendur virða það að selja og flytja inn vörur sem eru leyfilegar á íslandi en leyfðar alls staðar annars staðar, þannig ef fólk hefur aldrei tekið inn fæðubótaefni en vill prufa þá get ég sagt að ykkur er alveg óhætt en fáiði þá ráðleggingu frá einhverjum sem þekkir til því ef þú þarft t.d. að léttast þá er whey protein hugsanlega ekki varan fyrir þig en það verður að meta eftir hverjum og einum. Varðandi innflutning á fæðubótaefnum og efnum sem eru óleyfileg þá hefur lyfjastofnun gefið undan , því það eru ekki nema 3 eða 4 ár síðan það var bannað að flytja inn fæðubótaefni sem innhéldu Koffín , þeir gáfu ábyggilega undan á endanum vegna þess það stangaðist á við aðrar tegundir sem innihalda Koffín eins og kaffi te og sumt gos. Hver var upprunalega pælingin með því að banna etta ??? héldu þeir að það væri til önnur og einhver virkilega skaðleg tegung koffíns ????
Njótið
Bjöddi
14.6.07
Mitt helsta áhugamál er líkamsrækt og flest sem að henni kemur , ég hef í mörg ár aukið fróðleik minn mér til gagns og gamans m.a. með lestri á greinum og skipst á skoðunum við kunningja mína sem hafa innsýn í “ræktinni”. Ég er einnig lærður Einkaþjálfari á Grunnnámskeiði Life Fitness I og svo framhaldsnámskeiði sama skóla II og III. sem world class hafði umboð fyrir.
Ég hef stundum oft þann heiður að hafa verið beðinn um ráðleggingar um alls kyns æfingaformog hentug bætiefni, og þegar fólk vill ráðleggingar mínar þá tek ég því fagnandi.
Alls kyns ráðleggingar eru oftast mjög mismunandi eftir því hver er á í hlut, því fólk er misjafnlega á sig komið og þá er ekki sama uppskriftinn fyrir mann sem þarf að þyngja sig og þann sem þarf að létta sig.Sú aðferðafræði sem ég legg sjálfur upp úr þegar ég æfi er einföld : Hún er sú að ég æfi einn! Ég keppi við sjálfan mig! Reyni að bæta mig og fikra mig áfram eftir því sem ég tel mögulegt.Ég mæti á æfingu og ég veit hvaða vöðvahóp ég tek fyrir og hugsa ekki um aðra á meðan, og ég set tíma ! kl er 2 þegar ég byrja að æfa og ég vil fá allt það sem ég get út úr æfingunni á 50 mínutum max. Þá fer ég í sturtu. Þetta er pæling sem maður verður meðvitaður um að lenda ekki á kjaftatörn við einhvern í 10 mín og þá dottinn úr “stuði”. Það er ekki æfing. Þessi aðferðafræði hentar öllum sem æfa hún byggist bara á vilja til að komast skrefinu nær að góða forminu sem allir dreyma um. Það geta allir komist í gott form þá meina ég allir. Það sem til þarf er bara það sem gildir í öllu öðru. Það er þolinmæði og vinna og aftur vinna. Þegar ég á við með vinnu í þessu tilviki þá á ég ekki bara við að æfa reglulega og rétt, heldur það líka að borða og breyta ósmekklegum venjum sem ekki passa við. Viljinn er allt sem til þarf í þessu eins og gildir um allt annað í lífinu, ef þú ætlar þér og vilt virkilega komast í form þá skaltu framkvæma það og byrja. Það er ekki flóknara en svo.
Þetta er spurning um að ögra sjálfum sér, eins og máltækið segir “heilbrigð sál í hraustum líkama” segir meira en mörg orð
10 júní 2007
Fólk sem stendur fast á sinni skoðun þarf að virða, svo stend ég fast á minni skoðun gagnvart fólki og þá er það líka hlutur sem vert er að virða. Í ljósi þess þegar fólk færir fram rök um það að það hafi ekki tíma til að stunda ræktina eða aðra reglubundna hreyfingu og segist hafa prufað en gefist upp því það hafði ekkert upp á sig og sá ekki þann árangur sem það stefndi að. eftir 2 vikur þá köttaði það á hreyfinguna og settist aftur upp í sófa með tærnar upp í loft því það sá engan árangur. Ef maður fer að pæla í því þá er fólk alltaf að sækjast eftir töfralausnum hvert sem litið er.Fyrir fólk sem ef til vill skammast sín fyrir að fara inn í stöð og er ekki í því líkamlega formi sem það vildi vera í og horfir í kringum sig á alla stæltu og flottu kroppana, fær það minnimáttakennd og þar af leiðandi fer sjálfsálitið í ruslið, það veit ekki hvernig það á að æfa og labbar út svekkt með sjálft sig og heitir því að mæta aldrei aftur þó svo það sé nýbúið að festa kaup á korti upp á nokkur þúsund krónur, er ekki soldið vitlaus ákvörðun að nýta sér ekki þessa fjárfestingu sem bætir alla heilsuna til hins betra? Hvað er dýrmætara en góð heilsa og þar af leiðandi að lifa sáttur við sjálfan sig.
En lykillinn að árangri er fjölbreytni æfinga og það þarf reglulega að fikra sig áfram upp í næstu tröppu. Þetta er ein aðalástæðan fyrir því að fólk gefst upp, það fær upp í háls af ófjölbreytileikanum , það á við allt , auðvitað vill fólk hafa fjölbreytni en hakka ekki alltaf í sama farinu eða æfingatækinu. Það kallar upp neikvæða hugsun og neikvæð hugsun dregur úr kjarki og viljanum til að komast áfram, fjölbreytnin brýtur ísinn
Björn Þór Sigurbjörnsson Personal Trainer Life fitness Academy